JobMesh

Sumarstarf í skaðaminnkandi búsetukjarna

Reykjavíkurborg · GB

Við leitum að starfsfólki í sumarafleysingar. Í íbúðakjarnanum búa íbúar með tívíþættan vanda, þar sem veitt er sólahringsþjónusta. Markmið með þjónustu íbúð...

Job description

Við leitum að starfsfólki í sumarafleysingar. Í íbúðakjarnanum búa íbúar með tívíþættan vanda, þar sem veitt er sólahringsþjónusta. Markmið með þjónustu íbúðakjarnans er að mæta þörfum íbúa á heimilum þeirra á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt. Íbúum er veitt ráðgjöf og sértækur stuðningur með það að markmiði að efla vald íbúa yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd, sjálfstraust, sjálfsvirðingu, félagslega stöðu og lífsgæði. Þjónustan tekur mið af hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn, skaðaminnkandi nálgun og áfallamiðaðri nálgun, þar sem rík áhersla er lögð á notendasamráð við íbúa. Æskilegt starfshlutfall er 80 - 100%, þar sem unnið er á dag-, kvöld-, nætur og helgarvöktum. Hringbraut 79 er regnbogavottaður vinnustaður. Helstu verkefni og ábyrgð - Framfylgir þjónustuáætlunum og vinnur samkvæmt verklagsreglum - Veitir einstaklingsmiðaðan stuðning við athafnir daglegs lífs - Styður íbúa við að lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi - Veita íbúum félagslegan stuðning - Vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa - Önnur starfstengd verkefni sem stjórnendur kunna að gefa Hæfniskröfur - Góð almenn menntun - Umburðalyndi og virðing fyrir fólki með...