JobMesh

Íþróttafræðingur / aðstoðarmaður í sjúkraþjálfun

Grund · GB

Grund hjúkrunarheimili er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa 300 manns. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi sta...

Job description

Grund hjúkrunarheimili er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa 300 manns. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi starfsumhverfi. Sjúkraþjálfun Grundar hjúkrunarheimilis leitar að íþróttafræðingi eða aðstoðarmanni í starf í sjúkraþjálfun frá 10.ágúst n.k. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem lögð er áhersla á góða teymisvinnu. Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi. Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hæfniskröfur: Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Gestsdóttir sjúkraþjálfari gudrung@grund.is - Góð íslenskukunnátta - Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi - Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni