Spennandi sumarstörf í skaðaminnkandi búsetuúrræði fyrir konur
Reykjavíkurborg · GB
Vesturmiðstöð leitar að starfsfólki í sumarafleysingu í skaðaminnkandi búsetukjarna fyrir konur með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Um er að ræða morgun-,...
Job description
Vesturmiðstöð leitar að starfsfólki í sumarafleysingu í skaðaminnkandi búsetukjarna fyrir konur með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Um er að ræða morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir. Markmið með þjónustunni er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt. Íbúum er veitt ráðgjöf og sértækur stuðningur í búsetunni. Þjónustan er veitt með það að markmiði að efla vald íbúa yfir aðstæðum sínum og lífi, styrkja sjálfsmynd, sjálfstraust, sjálfsvirðingu, félagslega stöðu og lífsgæði. Þjónustan tekur mið af skaðaminnkandi nálgun og batahugmyndafræði. Mikilvægt er að starfsmaður treysti sér í að sinna verkefnum við krefjandi aðstæður. Helstu verkefni og ábyrgð - Félagslegur stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi - Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar - Aðstoðar íbúa við tiltekt og þrif - Almenn heimilisþrif Hæfniskröfur - Góð almenn menntun - Reynsla af vinnu með fólki í vímuefnavanda er kostur - Umburðalyndi og virðing fyrir fólki með flóknar og miklar þjónustuþarfir - Þekking eða áhugi á skaðaminnkandi nálgun og batahugmyndafræði - Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæð vinnubrögð - Jákvæðni - Íslenskukunnátta B2 eða hærra ( í samræmi við samevrópskan tungumálar...