JobMesh

Hjúkrunarfræðingur í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir

Reykjavíkurborg · Selma, California, US

Við leitum að hjúkrunarfræðingi í okkar teymi til þess að starfa á vettvangi, mæta einstaklingum þar sem þeir eru staddir og veita hjúkrun í þeirra umhverfi...

Job description

Við leitum að hjúkrunarfræðingi í okkar teymi til þess að starfa á vettvangi, mæta einstaklingum þar sem þeir eru staddir og veita hjúkrun í þeirra umhverfi þar sem þörfin er mest. Hjúkrunarfræðingur er staðsettur og starfar innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, þar sem dagleg þjónusta er veitt. Næsta yfirmaður og faglegt bakland er innan SELMU teymis sem er sérhæft teymi innan heimaþjónustu. Starfsmaður gegnir því lykilhlutverki við að brúa bilið milli heimahjúkrunar og vettvangshjúkrunar og tryggja að einstaklingar fái samfellu í þjónustu. Um er að ræða starf í dagvinnu og er starfshlutfall 100%. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni: - Skipuleggja og veita hjúkrunarþjónustu á vettvangi í neyðarskýlum og búsetu í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir - Veita sérhæfða hjúkrunarmeðferð og aðlaga þjónustu að flóknum þörfum - Tryggja samfellu í þjónustu og vera tengiliður við heilbrigðisstofnanir og aðra þjónustuaðila - Teymisvinna með starfsfólki í málalfokki heimilislausra með m...